|
|
10.02.2010 22:56:18 / oddny
sælt veri fólkið ætlaði nú bara að rita fáein orð til að minna á að maður sé enn á lífi. Það helsta að frétta af okkur að ég útskrifaðist um jólinn síðustu sem félagsliði frá ME. Kristján er en að vinna hjá Gámaþjónustu Austurlands og Bjarni er kominn á deildinna Rjóður á skógarlandi. Bjarni stækkar rosalega hratt og gengur honum vel í leikskólanum. Einig er hann farinn að æfa fótbolta með 8 flokki hjá Hetti. Við höfðum íbúðarskipti í sumar , létum húsið okkar í sveitinni upp í fína og nýja íbúð hér í nýju hverfi á Egilsstöðum. En hvað er að frétta af ykkur hinum, nú eru flest allir náttúrlega komnir með fésbók. Þannig að maður bloggar ekki mikið. kveðja Oddný og co
»
22.01.2009 20:33:33 / oddny
Jæja heil og sæl öll sömul. héðan að austan er allt gott að frétta. En okkur uggar við þær fréttir sem við sjáum í fjölmiðlum þessa daganna. Endilega gott fólk mótmælum en hættið að bögga lögguna, hún er bara að vinna vinnuna sína. Það er ekki ásætanlegt að ráðast svona að fólki, hvort sem það er lögga eða kassamanneskja í bónus, semsagt ef hún segði vitlausan hlut á ég þá að grýta hana með grjóti ? ég bara spyr. Þetta er hræðilegt ástand á íslandi, okkur er kennt að bera ábyrgð og eigum að kenna börnum okkar að bera ábyrgð en hvernig eigum við að geta það þegar sjálf ríkistjórnin vill ekki bera ábyrgð á mistökum sínum. Hvaða skilaboð eru það til komandi kynslóða ? Ég vona að við förum að sjá einhverjar breytingar. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili kveðja Oddný
»
09.01.2009 11:06:49 / oddny
Heil og sæl ákvað að segja gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Héðan er allt gott að frétta, við vorum að fá nýja íbúð, sem er sko flott með nuddbaðkari og allt maður, hehe ekki slæmt. Jæja er komin með gest og ætla að skrifa seinna Kveðja Oddný
»
25.11.2008 11:07:46 / oddny
jæja jæja og sælt veri fólkið, ég verð nú að segja að mál seinustu vikna eru mjög alvarleg, og ekki skil ég að það sé ekki búið að gera neinar breytingar, hvar eru barnabæturnar sem talað var um að borga út mánaðarlega, séreignalífeyrissjóðin sem við áttum að fá að leysa KANNSKI út, hvernig ætli þetta verði hjá sumum um jólin  Maður er nú ekki sáttur og því segi ég fyrir mig að ÉG VIL SJÁ BREYTINGAR. er orðin leið á loforðum og svo gerist ekki neitt. En hvað um það, annars er allt gott að frétta af okkur Bjarna. Nýjasta nýtt hjá syni mínum er að hann vill hafa naglalakk takk fyrir, hann vill ekkert annað, má taka af gamla en NEI hann verður að fá nýtt  Rosalega fyndið að sjá hann með naglalakk á stígvélum gangandi á leikskólan.  En það gengur mjög vel hjá mér í náminu, var að fá 3 verkefni til baka og fékk ég 9,9 og 10  ekki slæmt maður. En ætli ég verði ekki að fara að vinna, svo er skólin á eftir. bæjó Oddný og Bjarni.
»
14.11.2008 19:42:25 / oddny
jæja og sælt veri fólkið, það er búið að vera svo mikið að gera að maður hefur ekki haft tíma til að blogga, já skólinn er komin á fullt er núna í endalausum verkefnum og ritgerða vinnu og lítur út fyrir að ég verði alla helgina með nefið ofan í bókunum, svo er mín líka á uppeldisnámskeiði hjá fljótsdalshéraði, sem er reyndar mjög skemmtilegt. Bjarni er farinn að tala mikið og málskilningur mjög góðu. Hann er alltaf jafn duglegur að ná manni upp á háa C og líka að bræða hjarta manns jafn fljótlega, hann sagði í fyrsta skipti á afmæliskvöldinu mínu þegar hann var að fara að sofa Mamma elska þig, og maður fékk alveg fiðring í magan og langaði að fara að gráta af gleði. Í dag voru dagar myrkus hjá Bjarna á leikskólanum og fóru þau út með málaðar krukkur eftir sjálfan sig með kertaljósi í , það var alveg rosalega fallegt að sjá það svona í skammdeginnu í morgun. Annars erum við alveg rosalega hress og kát og er ég farin að hlakka til jólanna, já ég veit að það er bara nóvember en allan undirbúning sem maður á eftir að standa í á næstu vikum fyrir það veldur mér gleði, því Bjarni er orðin svo stór að hann getur hjálpað mér. Ég er búin að missa 13 kg ekki viss með cm en það gengur alveg rosalega vel að nota vörurnar. Núna fæ ég mér allavega einhvað á morgnanan annað en kaffi og síkó.
En að kreppu tali: ég er orðin leið á þessu, það er ekki hægt að fletta blöðum, horfa á fréttir eða bara hlustað á útvarp. Er alveg að verða brjáluð á þessu helvítans tali. Svo koma þessi stjórnmálamenn og tala og tala meira og eina sem ég heyri er blablabla ljúgaljúgaljúga svo við getum falið það hvað ísland er komið í mikin skíta mál fjárhagslega og þökk sé þessum stuttbuxna drengjum í sinni helvítans útrás er búið að skuldsetja son minn og jafnvel mína afkomendur í framtíðinni, þetta er alveg frábært hjá þessum mönnum. En hvað um það ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en þið megið endilega kommenta um þetta mál og svo reyni ég eftir bestu getu að skrifa oftar
Kveðjur og knús að austan, sendi öllum mínar hlýjustu óskir um að hafa það gott í þessu brjálæði hér á ísland. Oddný og Bjarni
»
06.09.2008 09:22:16 / oddny
Hey hey og sælt veri fólkið jæja ætla að skrifa smá eftir sumarið - Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur Bjarna
Við erum flutt í Egilsstaði við mæðgin og líkar okkur vel, ég er byrjuð í skólanum og Bjarni á leikskólanum eftir sumarfrí.
Það var alveg rosalega gaman hjá okkur í sumarfríinu, við fórum í Borgarfjörðinn í sveitina og hittum ættingjana á ferjubakka, það var rosalega gaman og héldum við upp á afmælið hans Bjarna þar, en nú er hann orðinn 3 ára.
Ég er byrjuð að nota herbalife og er oriðin dreifingaraðilli líka, ég er búin að léttast um 11 kg og búin að missa 10 cm um magan, alveg geggjað, er núna alltaf í þjálfun hjá sjúkraþjálfa of í nuddi, því skrokkurinn var einhvað að gefa sig
En eins og þið heyrið er allt gott að frétta af okkur mæðginum.
Reyni að vera duglegri að skrifa í vetur
kveðja Oddný
p.s er með herbalife síðu sem er herbalifevorur.blogcentral.is
»
11.07.2008 12:59:30 / oddny
Sælt veri fólkið, vei vei nú er Bjarni að byrja í sumarfríi eftir daginn í dag og hlakkar okkur mikið til að geta kúrt aðeins frameftir,  Einig er algjör þörf fyrir þessi litlu skinn að fá frí frá leikskólanum í 4 vikur alveg eins og fyrir okkur að taka stundum frí. Ég og Bjarni ætlum að drífa okkur með flugi og fara í Borgarfjörðinn til ættingja þeirra feðga í heimsókn og ætla ég að halda afmælið hans Bjarna þar, enda nóg af börnum á ferjubakkatorfunni. Við förum suður laugardaginn 26 júlí og komum aftur heim fimmtudaginn 31 júlí. Rútan fer reyndar á laugardeginnum ekki fyrr en kl 17 frá BSÍ þannig að ég er að hugsa um að kíkja í húsdýragarðinn með Bjarna á meðan við bíðum, Kristján ætlar að vera eftir heima að vinna,  hefði ekkert á móti því að hann kæmist með. En við förum bara í frí seinna. Eins og þið getið lesið þá gengur allt sinn vanagang hér á heimilinnu, jæja ætla að fara að gera einhvað af viti Kveðja Oddný og co
»
21.06.2008 19:53:12 / oddny
Sælt veri fólkið Nú er maður ekki sáttur eftir að ég sá frétt í kvöld á netinu, hvað er fólk að pæla að setja 4 mánaðan gamlan hvolp út í hraun lifandi og raða þungum steinum yfir, hvað er að svona fólki, þetta fólk ætti að leggja lifandi undir steina og leifa þeim að finna hvernig það er að berjast fyrir lífi sínu, gjörsamlega varnarlaus gagnvart umhverfinu, ég vona að þetta fólk finnist svo það verði hægt að taka það í gegn almennilega. hér er slóðinn á fréttina á vísir.is http://visir.is/article/20080621/FRETTIR01/357677648En annars er allt gott að frétta hér úr sveitinni, allir hressir og ánægðir að vanda, hvort sem um menn eða dýr að ræða, Kristján setti fjórhjólið í gang í morgun og Krapi (litli þjóðverjinn okkar) fór að grenja af því hann fékk ekki að fara með,  þegar hann var búin að grenja í 2 tíma fór ég með hann og sleppti honum upp í skógrækt til Kristjáns, hann hætti allavega að grenja  En hvað um það, Bjarni, ég og Kristján fórum með Svönu systir og Lísu systir ásamt börnum sem eru heima á skógardaginn mikla og skemmtum við okkur konunglega, drekka ketilkaffi, borða grillað nautakjöt og pulsur, horfðum svo á skemmtiatriði og höfðum gaman af. jæja verða að hætta þarf að sinna einhverju fyrir Kristján minn  Kveðja Oddný og co
»
08.06.2008 09:51:20 / oddny
Sælt veri fókið, ég var nú búin að skrifa um daginn alveg rosalega mikið en það hvarf af skjánum hjá mér  En hvað um það ástæða fyrir aðvörun minni hér í fyrirsögnini er sú að ég var að hengja út þvott um daginn og var stunginn af geitung í puttan, hann sat helvískur á einni klemmuni minni  En ekki nóg með það svo fer ég og ætla að taka þvottin niður seinna og ég ákvað að kíkja á klemmurnar fyrst og viti menn þar flaug hann af einni klemmuni þannig að ef ég hefði ekki kíkt þá hefði ég verið stungin aftur, enda erum við fólkið á Hjartarstöðum búin að hringja í meindýraeyðir og hann ætlar að eitra fyrir okkur. Annars er allt gott að frétta, ég fékk eina 10, tvær 9 og tvær 8 úr skólanum eftir veturinn. Nokkuð gott miðað við að maður var í fullri vinnu og með heimili. En ég er hætt á sambýli og Dvalarheimili aldraðar  Mjög leiðinlegt af því að þetta hentaði ágætlega nema að þetta var vaktavinna, þannig að ég er farinn að vinna á svæðisskrifstofu málefna fatlaðra og er búin að vera núna í 1 mánuð og líkar mjög vel, fjölbreytt og skemmtilegt. Kristján er alltaf að vinna, hann er enþá í ruslinu, svo er líka skógræktin byrjuð. Bjarni er alltaf jafn hress og kátur strákur og gerir ýmislegt sér til skemmtunar. Finnst honum nátúrlega lang skemmtilegast að vera úti að hjóla eða í sandkassanum. Eins og þið lesið erum við hress og kát fyrir sumarið. reyni að skrifa sem fyrst aftur Kveðja Oddný og co
»
28.04.2008 18:28:19 / oddny
Þetta komandi frá þessum manni fær kanski suma til að hlusta. > > Lesið þetta vel og vandlega það er heilmikið til í þessu  > > > Bill Gates hélt fyrirlestur fyrir unglinga í gagnfræðaskóla í > Bandaríkjunum. Hann talaði um reglurnar 11 sem þau hafa ekki og munu > ekki læra um í skólanum. > Hann talaði um agaleysi og nýjar áherslur í kennslu sem munu skila > nýrri kynslóð út í þjóðfélagið, dæmdri til að mistakast. > > > Regla 1: Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast því. > > > Regla 2: Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til að > þú áorkir einhverju áður en þú ferð að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig. > > > Regla 3: Þú munt ekki þéna 4 milljónir á ári strax þegar þú > útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú > hefur unnið fyrir því. > > > Regla 4: Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu > þangað til að þú færð yfirmann. > > > Regla 5: Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan > þína virðingu. Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa > hamborgurum. Þau > kölluðu það TÆKIFÆRI. > > > Regla 6: Ef þú klúðrar, þá er það ekki foreldrum þínum að kenna svo > hættu að væla og lærðu af mistökunum. > > > Regla 7: Áður en þú fæddist þá voru foreldrar þínir ekki svona > leiðinleg eins og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað > fyrir uppeldi þitt, þvo fötin þín, þrífa til draslið eftir þig og > hlusta á hvað þú ert COOL og þau eru hallærisleg. Svo áður en þú og > vinir þínir bjarga regnskógunum og leysið heimsmálin, reyndu þá að > taka til og koma reglu á herbergið þitt. > > > Regla 8: Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara og > tapara en lífið gerir það EKKI. Í sumum skólum er hægt að taka sama > prófið aftur og aftur. Þannig er þetta ekki úti í atvinnulífinu. > > > Regla 9: Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll > sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að > finna sjálfan þig. Gerðu það í þínum eigin tíma ! > > > Regla 10: Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveruleikanum þarf > > fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna. > > > Regla 11: Vertu NICE við nördana í skólanum, það endar mjög líklega > með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum þeirra. > THAT'S LIFE > Fékk þetta í tölvupósti, spáið aðeins í þessu Kveðja Oddný
»
17.04.2008 08:27:57 / oddny
Jæja sælt veri fólkið, Hér fyrir austan er allt gott að frétta, vorið virðist vera ganga í garð, því sauðburður er byrjaður víða, gæsirnar mættar á tún og þrösturinn kominn í tré. Hvað ég hlakka til sumarsins. Allt gengur vel með hann Bjarna, var ég í foreldraviðtali í gær og fékk að heyra að hann væri algjört gull, en hann væri svolítið stríðinn, sem þeim finnst bara í fínu lagi, því stríðnin er af góðum toga ekki neitt í illu. Enda held ég að börn á þessum aldri geti ekki verið illmenni, þetta eru svo saklausar sálir. Kristján er endalaust að flakka á milli landshluta út af viðgerðum á vinnubílum, var hann á Akureyri í gær og fer suður til Reykjavíkur á morgun að sækja annan ruslabíl, þannig að við sjáum nú ekki mikið af honum þessa daganna. Ég er alltaf á sama stað, vinna, heima og skóli. Var í þroskasálfræði í gær og komst að því að sálfræðingurinn Sigmund Freud var öruglega klikkaður, hér eru 2 kenningar sem hann setti um Kvennfólk. Stúlkur eru ófullgerðir drengir og Fullorðnar konur upplifa sig sem GELDA karla. Þetta kalla ég rugl, hann var með allskonar tilraunir á sér meðal annars hvernig Kókaín færi í mann. En svo er ég búin að læra líka helling í uppeldisfræði, t.d leiðandi uppeldi þar sem ég skilaboð eru notuð og virk hlustun, þau börn sem fá þetta uppeldi eru í minni hættu á að fara í fíkniefni og allskonar ógöngur. Ég vona að ég geti tileinkað mér þessa aðferð í uppeldinnu, því allir foreldrar vilja standa sig vel. Jæja ætla að fara að hætta þessu rugli, langaði bara aðeins að deila einhverju hér með ykkur, reyni að fara að skrifa þéttar. Kveðja Oddný og co P.S. Svana systir er búin að nefna litla prinsinn, hann heitir Óskar Ingi Jónsson, Það er búið að setja upp barnaland síðu fyrir hann. Endilega kíkja á hann, litla krúttið
»
27.03.2008 20:16:56 / oddny
Jæja halló allir saman, Svana systir og Jón Kjérúlf tóki á móti fyrsta barninu sínu saman í dag, það var lítil prins ekki var vitað hvað hann væri stór en hann kom í heimin rétt fyrir 18 í kvöld, vil ég og fjölskylda mín óska þeim og systkinum hans til hamingju með litla herran, En allt gekk víst vel en ég skrifa meira um þetta seinna þegar ég veit sjálf meira. En semsagt þessi ungi prins er 7 barnabarn foreldra minna og eru það 3 stúlkur og nú 4 drengir. Jæja ætlaði bara aðeins að skrifa um þetta Kveðja Oddný.
»
11.03.2008 16:17:02 / oddny
Jæja og sæl öll sömul. Ég er loksins farin að sjá fram úr verkefnum og ákvað að blogga smá um lífið í sveitinni, Eins og þið vitið fórum við hjúin í stórborgina á hundasýninguna 1-3 mars og gekk alveg fram úr vonum á henni, Krapi fékk 1 einkunn, heiðursverðlaun og var í 1 sæti í ungliða rakka hópnum í Vorstehtegundinni, einig tókum við þátt í ræktunar og afkvæmakeppnini og unnum báða titlanna sem besti hópur sunnudagsinns, ekki leiðinlegt. Við gistum í kópavogi á gistiheimili þar sem má hafa hunda, við bjuggumst ekki við miklu því helgin kostaði bara 15000 fyrir 2 í uppbúnu, við fengum stúdíó íbúð mjög litla og kósý, svo út í garið var heitur pottur og sánar, sem var að sjálfsögðu notað  En allavega var alveg rosalega gaman og við skemmtum okkur rosalega vel fyrir sunnan, sáum mikið af hundum og hittum mikið af fólki sem við þekktum. En við urðum að fara heim á endanum, sem var reyndar mjög gott því ég saknaði litla stráksins míns svo mikið, enda var mikið gleði þegar við komum heim hjá öllum heimilisfólki og dýrum, Kátur ætlaði nú bara upp í fang á mér eftir að við fórum á Eskifjörð að sækja hann, Perla(kötturinn)var svo ánægð að hún meira segja nuddaði sér í andlitið á Krapa (sem er nú alltaf að pína hana), en eins og þið heyrið er bara endalaust gaman hjá okkur, en það eru samt búin að vera mikil veikindi í kringum mig bæði í fjölskyldunni og í vinnuni, þannig að maður er svona svolítið innilokaður þessa dagana, þar sem litli gutti er svo rosalega kvefaður. En hann er að ná sér og fer á leikskólan á morgun og ég aftur í skólan  Ég er búin að setja einhverjar myndir inn núna eftir að ég fattaði hvernig ég ætti að gera það. Vonandi hafið þið það gott öll sömul og ég reyni að skrifa fljótlega. Fyrirgefið sem eigið heima í borginni og ég heimsótti ekki, í fyrsta lagi rata ég ekki í reykjavík, svo var ég líka alveg á fullu að æfa svo að Guðrún Dögg(sem sýndi Krapa) fengi hann nú í svona ágætu formi. Enda mín mætt upp í víðidal kl 7 á sunnudagsmorgni til að hlaupa með hundin. Skrifa fljót aftur Oddný og fjölskylda
»
26.02.2008 20:43:15 / oddny
Jæja gott fólk langt síðan maður hefur skrifað það er margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast, hér er búið að vera æfa stíft fyrir hrfí keppnina, eða svo kallaða alþjóðahundasýningu sem verður fyrir sunnan um helgina,  Þetta er búið að ganga svona lalala að þjálfa litla skrípið,  Segi nú svona en hann er alveg ágætur núna, Bjarni verður heima á meðan við hjúin skellum okkur í burtu við erum alveg að deyja úr spenningi, aðeins smá frí frá öllu, skóla,vinnu og heimilinu. En er nú ekki að kvarta. Svo styttist í það að Svana systir komi með litla krílið í heimin hún er skráð 19 mars, og ætlar hún að hætta að vinna núna um mánaðarmótin. Við skelltum okkur á sveitablótið 9 febrúar og var hart skotið að manni enda nágrannarnir og vinnufélagi Kristjáns í nefnd, enda var hlegið mikið og skálað, komum heim upp úr 4 eftir miklar danshreyfingar á ballinu. Bjarni er hress að vanda en getur verið svolítið erfiður þegar hann vill fara sínar leiðir. Ekki ólíkur foreldrum sínum segi ég nú bara, bæði stíf á okkar meiningum. kristján vinnur bara og vinnur en hann er nú samt meira heima núna heldur en áður þegar hann vann hjá þeim, þeir virða þetta betur að hann eigi fjölskyldu og hann þurfi stundum að eiga frí um helgar. Ég er jafn klikkuð og vanarlega  Gengur ljómani í skólanum og vinnuni, er nú ekki mjög góð húsmóðir þessa dagana (eins og það sé einhvað nýtt  ) En ætla að fara að hætta kannski ég prufi að reyna að setja einhverjar myndir hér inn einhvertíman við tækifæri En skrifa þegar ég kem heim Kveðja Odda og co
»
30.01.2008 20:37:34 / oddny
Sælt veri fólkið Héðan er allt ágætt að frétta, loksins laus við endajaxlinn en hann var valdur af sýkingunni, en ekki bætti það úr skák að þegar hann var farin fór sýkingin ekki og þurfti ég meira af lyfjum, ég er ný farin að geta bitið saman vegna þess að tannholdið var svo rosalega bólgið, spurning hvort maður fari nokkuð aftur til tannlæknis Ekki nemar þá undir áhrifum áfengis  En nú ætla ég að spyrja ykkur gott fólk, hvað fannst ykkur um grínið hjá Spaugstofunni ? Þetta var nú ekki alveg nógu gott fannst mér og fóru þeir langt yfir strikið, semsagt fjölmiðlar, það er verið að setja svo neikvæða mynd á þunglyndi og geðræna sjúkdóma, þetta er ekki alveg skref í rétta átt hvað það varðar, en fólk með þenna sjúkdóm er ekki verri en annað fólk, hver getur líka dæmt um hvað er normal og ekki normal..... Jæja þarf að halda áfram að læra mikið að gera í skólanum, og svo vill Bjarni fá knús frá mömmu sinni skrifa fljót aftur Oddný og co 
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 35498
Talning
Fyrir 720 dögum
Kristján 35 ára
|