14.11.2008 19:42:25 / oddny
ég hata kreppu..........
jæja og sælt veri fólkið,
það er búið að vera svo mikið að gera að maður hefur ekki haft tíma til að blogga, já skólinn er komin á fullt er núna í endalausum verkefnum og ritgerða vinnu og lítur út fyrir að ég verði alla helgina með nefið ofan í bókunum, svo er mín líka á uppeldisnámskeiði hjá fljótsdalshéraði, sem er reyndar mjög skemmtilegt.
Bjarni er farinn að tala mikið og málskilningur mjög góðu. Hann er alltaf jafn duglegur að ná manni upp á háa C og líka að bræða hjarta manns jafn fljótlega, hann sagði í fyrsta skipti á afmæliskvöldinu mínu þegar hann var að fara að sofa Mamma elska þig, og maður fékk alveg fiðring í magan og langaði að fara að gráta af gleði.
Í dag voru dagar myrkus hjá Bjarna á leikskólanum og fóru þau út með málaðar krukkur eftir sjálfan sig með kertaljósi í , það var alveg rosalega fallegt að sjá það svona í skammdeginnu í morgun.
Annars erum við alveg rosalega hress og kát og er ég farin að hlakka til jólanna, já ég veit að það er bara nóvember en allan undirbúning sem maður á eftir að standa í á næstu vikum fyrir það veldur mér gleði, því Bjarni er orðin svo stór að hann getur hjálpað mér.
Ég er búin að missa 13 kg ekki viss með cm en það gengur alveg rosalega vel að nota vörurnar. Núna fæ ég mér allavega einhvað á morgnanan annað en kaffi og síkó.
En að kreppu tali: ég er orðin leið á þessu, það er ekki hægt að fletta blöðum, horfa á fréttir eða bara hlustað á útvarp. Er alveg að verða brjáluð á þessu helvítans tali. Svo koma þessi stjórnmálamenn og tala og tala meira og eina sem ég heyri er blablabla ljúgaljúgaljúga svo við getum falið það hvað ísland er komið í mikin skíta mál fjárhagslega og þökk sé þessum stuttbuxna drengjum í sinni helvítans útrás er búið að skuldsetja son minn og jafnvel mína afkomendur í framtíðinni, þetta er alveg frábært hjá þessum mönnum. En hvað um það ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en þið megið endilega kommenta um þetta mál og svo reyni ég eftir bestu getu að skrifa oftar
Kveðjur og knús að austan, sendi öllum mínar hlýjustu óskir um að hafa það gott í þessu brjálæði hér á ísland.
Oddný og Bjarni